Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar (LSA) hefur samþykkt að hefja viðræður um samruna sjóðsins við Brú lífeyrissjóð frá og með 1. janúar 2025, þannig að sjóðurinn verður sérstök deild í þeim sjóði. Slíkur samruni felur í sér að réttindi og réttindaávinnsla sjóðfélaga verður óbreytt og að eignir og skuldbindingar sjóðsins verða algjörlega aðskildar frá öðrum eignum og skuldbindingum Brúar lífeyrissjóðs.
Viljayfirlýsing þessi er gefin út á grunni bókana bæjarráðs Akureyrarbæjar annars vegar og stjórnar Kjalar stéttarfélags hins vegar, þar sem framangreindir aðilar samþykkja að farið verði í fýsileikakönnun á samruna LSA og Brúar.
Ef viðræður leiða til tillögu um samruna sjóðanna verður sú tillaga, að fengnum staðfestingum bæjarráðs og stjórnar Kjalar stéttarfélags, lögð fyrir ársfund sjóðsins á árinu 2025 til samþykktar. Samþykki ársfundur sjóðsins tillöguna verður hún send Fjármálaeftirlitinu til staðfestingar. Þar til slík staðfesting fæst verður rekstur sjóðsins með óbreyttu sniði í höndum Stapa lífeyrissjóðs samkvæmt rekstrarsamningi þar um.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri.