Næstu daga berast sjóðfélögum yfirlit með upplýsingum um iðgjaldahreyfingar vegna ársins 2017. Á bakhlið yfirlitanna eru upplýsingar um helstu niðurstöður ársreiknings sjóðsins.
Við hvetjum sjóðfélaga til að bera saman iðgjaldagreiðslur á yfirliti við greidd iðgjöld samkvæmt launaseðlum. Ef iðgjöld vantar inn á yfirlitið getur sjóðfélagi leitað til starfsfólks Stapa lífeyrissjóðs, sem sér um rekstur sjóðsins, við lausn málsins.
Ef launþegi hefur ekki fengið yfirlit en telur að vinnuveitandi hafi átt að skila iðgjöldum til sjóðsins er afar mikilvægt að hafa samband við sjóðinn.