Þriðjudaginn 11. maí var ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar haldinn rafrænt. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf.
Dan Jens Brynjarsson, formaður stjórnar, fór yfir skýrslu stjórnar um starfsemi sjóðsins á árinu 2020. Í ræðu hans kom fram að reksturinn hafi verið í föstum og traustum skorðum á árinu eins og undanfarin ár. Sjóðurinn hafi um árabil rekið nokkuð varfærna fjárfestingarstefnu þar sem stærsti hluti fjárfestinga sjóðsins er myndaður af ríkistryggðum verðbréfum.
Eignir voru metnar á gangvirði og er ársreikningurinn byggður á því og ætti að gefa nokkuð glögga mynd af eignastöðu í árslok 2020. Hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris nam 13.490 milljónum króna og hækkaði um 6,1% frá fyrra ári.
Nafnávöxtun sjóðsins á árinu var 11,2% og hrein raunávöxtun 7,4% samanborið við 9,6% nafnávöxtun og 6,7% raunávöxtun á árinu 2019. Meðalraunávöxtun sjóðsins sl. 5 ára er 4,1% og 4,3% ef horft er til síðustu 10 ára.
Þá fór Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri, yfir ársreikning sjóðsins og áritanir ásamt því að gera grein fyrir tryggingafræðilegri athugun. Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða að yfirferð lokinni. Næst kynnti Jóhann Steinar fjárfestingarstefnu sjóðsins og gerði grein fyrir helstu þáttum í fjárfestingarumhverfi hans.
Á fundinum voru lagðar fram tillögur að breytingum á samþykktum sjóðsins. Framkvæmdastjóri sjóðsins gerði grein fyrir þeim breytingum og voru þær samþykktar.
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar er óbreytt en hana skipa:
Frá Akureyrarbæ: Dan Jens Brynjarsson, Gunnar Gíslason og Halla Björk Reynisdóttir.
Varamaður: Eva Hrund Einarsdóttir og Geir Kristinn Aðalsteinsson.
Frá Kili: Arna Jakobína Björnsdóttir og Hanna Rósa Sveinsdóttir.
Varamaður: Árni Egilsson og Engilbert Ingvarsson.
Helstu gögn fundarins: