Fimmtudaginn 11. júní var ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar haldinn að Strandgötu 3. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf.
Dan Jens Brynjarsson, formaður stjórnar, fór yfir skýrslu stjórnar um starfsemi sjóðsins á árinu 2019. Í ræðu hans kom fram að reksturinn hafi verið í föstum og traustum skorðum á árinu eins og undanfarin ár. Eignir voru metnar á gangvirði og er ársreikningurinn byggður á því og ætti að gefa nokkuð glögga mynd af eignastöðu í árslok 2019. Hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris nam 12.713 milljónum króna og hækkaði um 6% frá fyrra ári.
Nafnávöxtun sjóðsins á árinu var 9,6% og hrein raunávöxtun 6,7% samanborið við 3,9% nafnávöxtun og 0,7% raunávöxtun á árinu 2018. Meðalraunávöxtun sjóðsins sl. 5 ára er 4,4% og 3,9% ef horft er til síðustu 10 ára sem teljast megi viðunandi.
Þá fór Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri, yfir ársreikning sjóðsins og áritanir ásamt því að gera grein fyrir tryggingafræðilegri athugun. Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða að yfirferð lokinni. Næst kynnti Jóhann Steinar fjárfestingarstefnu sjóðsins og gerði grein fyrir helstu þáttum í fjárfestingarumhverfi hans.
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar er óbreytt en hana skipa:
Frá Akureyrarbæ:
Dan Jens Brynjarsson, Gunnar Gíslason og Halla Björk Reynisdóttir.
Varamaður: Eva Hrund Einarsdóttir
Frá Kili:
Arna Jakobína Björnsdóttir og Hanna Rósa Sveinsdóttir.
Varamaður: Árni Egilsson
Meðfylgjandi eru helstu gögn fundarins: