Nú eru lífeyristilkynningar frá Greiðslustofu lífeyrissjóða birtar hjá Island.is. Næstu tvo mánuði verða tilkynningarnar einnig birtar í netbönkum líkt og verið hefur undanfarin ár en eftir það eingöngu á Island.is.
Þegar einstaklingur skráir sig inn á „Mínar síður“ hjá Island.is og opnar pósthólfið sitt er kannað hvort hann eigi skjöl hjá þeim skjalaveitum sem eru í samstarfi við Ísland.is og útbúinn listi. Ef einstaklingurinn velur að opna skjal er það sótt í skjalaveituna. Engin skjöl eru vistuð í pósthólfi, heldur eru þau sótt til viðkomandi stofnunar/fyrirtækis þegar innskráður einstaklingur óskar eftir þeim. Skjöl í pósthólfi Ísland.is eru birt á PDF-formi.