Fréttir af ársfundi sjóðsins

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar fór fram í dag. Fundurinn var haldinn að  Strandgötu 3 og á dagskrá voru hefðbundin ársfundarstörf.

Dan Jens Brynjarsson, formaður stjórnar, fór yfir skýrslu stjórnar um starfsemi sjóðsins á árinu 2023. Næst fór Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri, yfir ársreikning  og áritanir ásamt því að gera grein fyrir tryggingafræðilegri athugun. Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða að yfirferð lokinni.  Því næst kynnti Jóhann Steinar fjárfestingarstefnu sjóðsins og gerði grein fyrir helstu þáttum í fjárfestingarumhverfi hans.  

Stjórnarkjöri var lýst en stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar  skipa: 
Frá Akureyrarbæ:  Dan Jens Brynjarsson, Gunnar Líndal Sigurðsson og Snæbjörn Sigurðarson
Varamenn: Halla Björk Reynisdóttir og Gunnar Már Gunnarsson
Frá Kili:  Arna Jakobína Björnsdóttir og Hanna Rósa Sveinsdóttir
Varamenn: Árni Egilsson og Hafdís Erna Ásbjarnardóttir

Stjórnin lagði til að Enor ehf. verði endurskoðunarfyrirtæki sjóðsins og var tillagan samþykkt samhljóða.  

Gögn fundarins:
Skýrsla stjórnar
Glærur fundarins
Ársreikningur 2023
Fundargerð ársfundar