Stjórn LSA staðfesti ársreikning sjóðsins á fundi sínum í dag 13. mars. Nafnávöxtun síðasta árs var 7,7% sem svarar til -0,3% raunávöxtunar. Meðal raunávöxtun sl. 5 ár er 2,2% og 3,1 sl. 10 ár.
Hrein eign til greiðslu lífeyris hækkaði um 1,8% frá fyrra ári og nam í árslok 14.030 milljónum króna.
Alls greiddu 35 sjóðfélagi hjá 4 launagreiðendum iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu og námu þau 41 milljón króna. Lífeyrisgreiðslur námu 1.325 milljónum króna og var fjöldi lífeyrisþega 771.
Tryggingafræðileg staða sjóðsins er neikvæð um 43,6% en Bæjarsjóður Akureyrar er ábyrgur fyrir skuldbindingum sjóðsins.